hamagangur, ég þusti niður að læknum,
bjargvættur.
ég gerði skip tilbúið og fór með litla bæn
því ég var hræddur.
sólin skein og lækurinn seytlaði.
sóley - sóley flugurnar drepast.
en í dag á ég að bjarga sem flestum flugum.
með spotta í skip ég er með í hvorri hendi - ákveðinn.
ég kasta þeim út í hylinn og reyni að hala flugurnar
inn áður en seiðin ná til þar sem þær berjast
við strauminn og vatnið.
þannig líður dagurinn.
sjálfur kominn um borð, var farinn að berjast við bæjarlækinn
sem hafði þegar deytt svo margar.
ég næ ekki andanum og þyngist við hverja öldu.
mér vantar kraftaverk því ég er að drukkna syndir.
ég reyni að komast um borð.
ég dreg í land og bjarga því sjálfum mér
aftur á bakkann.
á heitan stein ég legg mig og læt mig þorna aftur.
ég kasta mér út í hylinn og reyni að hala flugurnar
inn áður en seiðin ná til þeirra þar sem þær
berjast við strauminn og vatnið.
gustur, allur rennblautur.
frakkur finnur hvernig báturinn er kominn og mesta straumnum og landið
smám saman nálgaðist.
hann er bæði um borð í sjó og landi bjargandi flugunum
sem farast hér.
þó sér í lagi sjálfum sér.
eilíft stríð og hvergi friður.
en það verður einhver að fórna sér.
dagarnir eru langir.
